|
|
27.08.2006 20:43:16 / Begga
hallo! va veit ekki hvort eikkver kikjir inn a siduna
mina ennta.. en allavega ta er eg byrjud aftur ad blogga og
hana nu og eg aetla ad vera ykt dugleg ad setja inn myndir!

en eg er stodd i israel nuna .. omg tad er aedislegt..i dag
var 38 stig, puff.. adeins of mikid fyrir mig en eg daeli i mig
is og helst tannig med medvitund 
tetta er tridji dagurinn herna og vid forum a strondina i dag og
lagum eins og skriddyr tar, gedveikt i gaer forum vid a stad
sem heitir Hamat gader, sem er svona svipadur stadur og blaa lonid,
sundlaug med jardhitavatni, nema tar voru krokodilar tar lika..
hehe og vid fengum ad sja tegar tad var gefid teim ad borda,
jesus, tad var hent til teirra kjuklingum, og teir sveifludu teim
og taettu ta og einn kom ad okkur med kluklingalegg ut ur ser
haha..
A morgun verdur verslunardagur hja okkur, oh tad er svo gedveikt
ad versla herna, geggjud moll og tvilikt odyrt! 
svo fer eg vaentanlega beint til slovakiu eftir israel en ekki
heim a milli eins og var a planinu..tannig ad eg verd ad fa ad eiga
inni morg knus! 
en allavega hafidi tad gott i 10 stigunum muhahahahha

begga banani 
»
29.03.2006 09:56:25 / Begga
»
06.03.2006 14:59:22 / Begga
vá hvað ég er orðin þreytt á endalausum vetri.. búið að vera
hellingur af snjó og alveg niður í mínus 15 takk fyrir.. lókalarnir
hérna segja nú samt að vorið komi í apríl.. held fast í þá von

En allavega var að koma úr anatómíu prófi, gekk ýkt vel, nældi
mér í eitt stykki A svo er munnnlegt anatómíupróf á morgun..
ætla að rúlla því líka upp 
Ariel er að breyta mér í nörra, ég hef aldrei verið svona
samviskusamur nemandi!! að undirbúa mig fyrir fyrirlestra
var eikkvað sem var ekki inn í myndinni í HÍ hehe það er
líka eins gott að gera þetta almennilega fyrst ég er nú föst hérna
"in the middle of nowhere" 
Heyrðu þar sem ég er svo þvílíkt löt að setja inn myndir hingað
þá ætla ég að henda hérna inn link á myndasíðu frá bekkjarfélaga
mínum:
http://davidojessica.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album07
þetta er ekki allt úr skólanum, en helmingurinn
allavega ef þið eruð forvitin að kíkja 
Jæja anatómían á morgun, ætla að fara að læra
meir.. jesús 
ciaooooo, Begga bókaormur 
»
13.02.2006 15:37:02 / Begga
Hæjó! vá hvað er langt síðan ég hef bloggað.. og þvílíkt mikið
búið að gerast! ég veit að að eru margir orðnir geðveikir á þessu
skrifleysi í mér en ég geri mitt besta í að bæta þeim það upp

Ég fór sem sagt til Ísraels þann 21.jan og var þar í 12 daga og
það var ÆÐISLEGT! Ferðin byrjaði samt hræðilega.. Jú ok ég kom mér
í lestina til búdapestar áfallalaust deginum fyir brottför, kom mér
á hótelið, fékk mér ungverskan mcdonalds og kom mér svo snemma
deginum eftir upp á flugvöll.. 3 tímum fyrir brottför var mín
mætt, tilbúin að tjekka mig inn og kíkja á fríhöfnina en nei.. þá
byrjaði tjekk-in liðið að spyrja mig allskonar spurninga um allt
sem þeir mögulega duttu í hug.. ég er ekkert að grínast.. hvað ég
héti, hvar ég væri að læra, hvað ariel væri að læra, símanúmerið
hans, hvort hann ætti systkini, hvernig við kynntumst og svo miklu
meira.. og það var ekki eins og hann hafði eikkvern minnsta áhuga á
að hlusta á svörin hjá mér.. vá pirrandi.. en það var ekki nóg,
eftir það tóku þeir mig bakvið, fóru í gegnum allan farangurinn
minn, létu mig sanna að ég kunni á rafmagnstækin sem ég var með..
omg hvað ég var orðin pirruð.. en eftir að þeir létu mig fara úr
brjóstahaldaranum, tóku af mér sléttujárnið mitt og 2 og hálfan
tíma af spurnigaflóði fékk ég loksins að fara um borð í fylgd
starfsmanns! ég meina HALLÓ! lít ég út fyrir að vera eikkver
terroristi eða?? ég er ekki með neina fordóma, en arabarnir sem
voru með mér í flugi, og hafa ekkert allt of gott orð á sér,
löbbuðu bara beint í gegn.. brandari..
En jæja, flugið gekk vel, laust við sprengingar og Ariel sótti
mig á völlinn.. Ekkert smá gott að sjá hann eftir þessar
hremmingar!! Fyrstu dagana vorum við í norður-Ísrael í
ýkt sætum bústað með potti og alle græjer. Það var æði Næstu
dagana kíktum við á staði þar sem jesú labbaði á vatni, á steininn
sem hann gaf 5000 manns að borða af 1 fiski og 1 brauði og kirkju
St. Péturs.. híhí og ariel eins og álfur út úr hól, þetta
var í fyrsta skipti sem hann fór inn í kirkju.. Svo fórum við
að dauðahafinu og ég beint út í hehe það var ekkert smá gaman!
flaut þarna eins og bjáni og svo eyddum við einum
dag í Jerúsalem og skoðuðum m.a. grátmúrinn. Hehe og Ariel er svo
mikið borgarbarn að hann var alveg jafn mikill túristi og ég! þýddi
nákvæmlega ekkert að spyrja hann hvar við værum, þannig að við
villtumst fljótt.. en það var bara stemmari! ..
já við vorum all over the place og ég tók myndir af þessu
öllu saman!
En já ég verð duglegari að blogga núna, búið að vera vangefið að
gera hjá mér í skólanum, kennararnir eru ekki beinlínis að byrja
eikkvað rólega! En ég geri mitt besta eins og venjulega! 
Ciao í bili, Begga terroristi 
»
20.01.2006 11:06:03 / Begga
HÆJÓ! já ég er loksins búin í prófum! önnin mín er búin og mér
gekk bara svona líka asskoti vel var að koma úr biophysics
prófinu og nældi mér í eitt stykki B sem er ca 8, ég er ekkert smá
ánægð með það! nú hef ég tvær vikur í frí, sem er nauðsynlegt,
maginn á mér er í fokki eftir þessa prófatörn, er þessi týpan sem
verður alltaf vangefið stressuð fyrir próf, skiptir ekkert máli
hversu mikið ég er búin að læra!! 
og ó mæ gad hvað ég er orðin spennt að fara til ísrael fer
sem sagt til budapest á morgun og gisti þar yfir nótt og tek svo
vél til ísrael á sunnudag.. þetta verður ævintýri, vona bara að ég
villist ekki einhverstaðar, það er eikkvað svo típískt ég.. ekki
hughreistandi hvað fáir í unverjalandi tala ensku.. en þetta
reddast, ég er orðin nokkuð góð í svona ýktu "body language" eftir
dvölina hérna í Slóvakíu 
Planið í dag er sem sagt að njóta þess að vera í fríi, ekkert
stress, elda mér góðann burger og horfa á nýjasta Lost

Adios, Begga brany 
»
13.01.2006 12:03:13 / Begga
»
19.12.2005 15:19:18 / Begga
»
10.12.2005 21:56:26 / Begga
Halló!!! lítið búin að vera að blogga ég veit ég veit.. ég held
ég bloggi ekkert aftur fyrr en eftir heimferðina, það er allt að
verða bandvitlaust hjá mér núna án f.. djóks.. Ég átti að vera að
fara í 5 próf á 6 dögum, en nei það var ekki nóg, ákvað að
bæta á geðveikina og skella einu stykki lokaprófi þarna inn.. já ég
veit: ekki alveg heil í hausnum dúddírú ehe ég er að fara í próf
í anatomyu á mánudag.. Ef þið vitið um orð sem er sem er sterkara
en drullu mo. fo.. stressuð þá megið þið láta mig vita því það
myndi passa vel fyrir mig núna! ó mæ god..... En búin að vera að
læra eins og vitleysingur, en það er enginn heimsendir ef ég næ
ekki prófinu núna.. má alveg taka það aftur..
Heyrðu nældi mér í eitt stykki 10 í biophysics á fimmtudag..
jeij! ekkert smá happy, hækkaði heldur betur egóið mitt
þetta var nú kannski ekki erfiðasta próf sem ég hef farið í en
samt, tía er tía 
Já svo lenti ég heldur betur í því á miðvikudaginn á hestbaki..
Kennarinn var að kenna mér hvernig á að fara á stökk sem var by the
way GEÐVEIKT!! það var svo gaman, leið eins og kúreka!! svo í
lok tímans villdi kennarinn endilega að ég prófaði að fara á stökk
án þess að vera í fótstigunum.. ok ég hlíði náttlega, ekkert
æðisleg tilfinning að vera með fæturnar dinglandi á meðan hesturinn
er á fullri ferð haha en ég fékk ekki að prófa það því
hesturinn var víst orðinn eikkvað pirraður, nennti ekki meir
tók eitt stykki prjón og kastaði mér af.. meiddi mig ekkert
alvarlega sko, var ekkert smá pirruð samt út í blessaða
hestinn Kennarinn snöggur að draga mig á fætur og henda mér upp
á hestinn aftur, skulda honum víst vínflösku núna.. (uhh veit
ekki alveg af hverju, eikkver slóvakískur siður held ég haha..)
Svo styttist í mig.. hehe skemmtilegt að lesa bloggið mitt, eina
sem ég skrifa um er skólinn, skólinn, læra, skólinn og að koma
heim.. Flóknara er það bara ekki hjá mér hérna! ég á ekkert mikið
líf fyrir utan skólann, sérstaklega ekki núna!! djísiss 
Jæja hætt þessu rugli, farin að læra vöðvana,
Sí jú leiter on the kleik 
Begga 
»
01.12.2005 12:12:14 / Begga
Jæja þá er ég loksins búin að drattast til að kaupa mér
myndavél! ýkt flott canon digital ixus 50, mjög ánægð ég tók
hana með mér í skólann í gær og tók nokkrar myndir þar og ég tók
hana líka með mér í hestana ég er búin að setja þær inn
þannig að endilega kíkjiði á þær 
Það er KREISÍ að gera hjá mér núna!!! Ég er að fara í stærsta
próf eftir 2 vikur sem ég held að ég hafi farið í á æfinni!! ég er
orðin svoo stressuð og þetta er svo mikið efni og það skiptir ekki
máli hversu mikið ég læri, mér finnst ég ekkert komast áfram.. en
ég hef 2 vikur.. ég geri mitt besta eins og alltaf, hefur virkað
fínt hingað til 
úff ég verð ábyggilega í þvílíku spennufalli um jólin þegar ég
kem heim og á örugglega eftir að sofa út í eitt yfir hátíðarnar!!!
hehe
Ég á ekki eftir að eiga neitt líf næstu 2 vikurnar hérna, þannig
að það er eins gott að það verði almennilegur djammfílingur í fólki
þegar ég kem heim 21. des!!!! ég efast ekki um það, allir búnir í
prófum og sona.. svo ég minnist nú ekki á að
aðaldjammboltinn verður kominn aftur á klakann 
Jæja farinn að læra anatomyu 
B.
»
26.11.2005 16:33:27 / Begga
jamm.. ég var að deyja úr heimþrá í gær.. fer svona
stigmagnandi, get ekki beðið eftir að koma heim æji ég er
ekkert vön að fara að heiman í svona langan tíma og tilhugsunin um
að ég eigi eftir að vera hérna í 5 ár í viðbót er dáldið
yfirþyrmandi og ég er ekki einu sinni búin með 1/10 af þessu námi,
mig langar bara að hraðspóla!! neinei, ég er ekkert að gefast upp
ef þið haldið það!! ég verð hérna og klára þetta, verður pottþétt
auðveldara fyrir mig að vera hérna þegar ég verð vanari að vera
ekki heima á klakanum. ég læt mig hafa þetta, maður verður bara að
taka þetta með hörku Úff svo fer að nálgast í prófin, tek 2 áður
en ég fer heim og tvö eftir jól, þannig að ég er bæði spennt yfir
að fara heim og kvíðin fyrir prófunum og maginn minn er ekkert
ægilega sáttur við þetta allt saman!! hehe ég sver það ég verð
komin með magabólgur eftir nokkur ár 
En ég er hætt þessu væli.. ég á mína góðu daga og slæmu.. ég
veit alveg að ég er ýkt heppin að vera að gera eikkvað sem mig
hefur alltaf dreymt um 
Já svo skellti ég mér í pool í gær með nokkrum ísraelum úr
bekknum.. Djöfull tók ég þá! hehe ég reyndi að útskýra
fyrir þeim að ég væri bara með meðfædda hæfileika eftir
að ég hreinsaði borðið!! þeir vildu meina að þetta væri bara
heppni, piff hlusta ekki á svoleiðis hehehe 
hehemm ég svaf til hálf 3 í dag og mín sem ætlaði að nýta daginn
í anatomyu jamm verð að fara að sparka í rassinn á mér.. gengur
ekkert að vera eikkvað löt!
Farin að læra anatomyu.. 
Ég sakna ykkar ALLRA heima!!!!! KNÚSSSSSSSSSS
Beggulíus
»
22.11.2005 17:25:11 / Begga
Heyrðu viti menn, það er byrjað að snjóa hérna í Slóvakíu!
allt ÝKT jólalegt!Hitinn datt úr +7 í -1 á nokkrum
dögum.. sem minnir mig pínu á Ísland Já það er
semsagt allt hvítt hjá mér núna, og ég byrjaði daginn á að renna
næstum á rassinn á svelli huhumm Þetta er fínt mátti ekki
seinna vera.. því að það eru að koma jól eftir hvorki meira né
minna en 33 daga sem þíðir:
Ég kem heim eftir 29
daga!!
hehe já orðin pínu spennt.. komin með heimþrá sko
en tíminn líður ekkert smá hratt hérna náttlega alltaf
meira en nóg að gera í skólanum...
Já ég fór að djamma á föstudaginn.. ég er búin að
komast af því afhverju maður er aldrei of drukinn heima.. það er
vegna þess að maður kaupir sér aldrei neitt niðrí bæ.. maður
drekkur áður en maður fer, fær sér kannski einn bjór niðrí bæ,
dansar af sér rassgatið fær sér hlölla og heim.. fín rútína.. en
hérna er það annað mál.. hérna drekkur maður áður en maður fer
niðrí bæ, en nei nei þá eru kokkteilarnir á 200 kall og bjór á 50
kall og auðvitað kaupir maður sér slatta þar líka og fólk að kaupa
ofaní mann.. jamm jeminn þannig að mín vaknaði á
laugardagsmorguninn ofan á sænginni, í jakkanum og í einum
skó.. ehe.. já læri af þessu.. haha hlæ af þessu eftirá, ég var
samt ekki hlægjandi á laugardaginn í þynnkunni minni... ég og anna
( sem ég leigi með) vorum sammála eftir föstudaginn að drekka
aldrei aftur.. en það er auðvitað búið að breytast núna hahah
Já ég er víst að fara í efnafræðipróf á fimmtudag..
alltaf nóg að gera jamm sjáum hvernig það fer..
ætla að fara að læra,
Begga bytta.
»
16.11.2005 16:16:25 / Begga
Halló ómg hvað ég er búin að vera bissí! ég er ekkert að
ýkja þegar ég segi að ég eigi ekkert líf fyrir utan skólann! ég er
búin að taka 2 próf núna í þessari viku, náði báðum og nældi mér
líka í eitt stykki 9 í latínu massívt ánægð! jamm
það gengur allt geggjað vel hjá mér núna.. ehe veit samt ekki
hvernig það verður eftir jól þegar lokaprófin skella á en það
kemur bara í ljós.. ef þau verða eikkvað í líkingu við skyndiprófin
(sem ég vona innilega) þá held ég sé bara í nokkuð góðum málum

svo er ég búin að vera í aukakúrs, "horse back riding"
og þeir eru æðislegir!! ég dýrka þessa tíma, og
kennararnir eru frábærir.. ýkt ánægð, í dag sagði kennarinn
við mig að honum fyndist gaman að sjá svona
mikla framför hjá mér á nokkrum vikum, hehe ýkt
stolt 
Já svo er djamm á föstudag ætlum að byrja á Cosmopolitan sem
er kokkteilbar, og maður fær 10 kokkteila á verði tveggja
heima hehe MJÖG ódýrt ég er ekki búin að fara út úr húsi á
kvöldin í LANGAN tíma þannig að mér finnst ég eiga það bara skilið,
svona áður en prófatörnin byrjar 
Reyni að vera duglegri að blogga núna, þar sem það er ekki eins
mikið að gera 
En jæja, ég ætla að fá mér kjúklingamaga núna, einhver sænskur
réttur sem Anna er að elda, hún er líka búin að vera að dæla í mig
kjúklingahjörtum, og svo er hún að segja að íslenski maturinn sé
skrítinn haha.. jeminn, en þetta er ágætt, ég er nú líka
alæta 
Ciao í bili, Begga latínusnilli 
»
10.11.2005 22:52:14 / Begga
Halló! já ég veit hvað þið eruð að hugsa... Djöfull er Begga
lélegur bloggari.. já ég veit alveg upp á mig sökina hmm.. ég ætla
að reyna að bæta mig ehe 
Já það hefur sko heldur betur mikið gerst hjá mér upp á
síðkastið.. Um helgina ákvað mín að skella sér heim á klakann, og
ég sé sko ekki eftir þeim fimmtíu kalli Það er langt síðan ég
hef skemmt mér svona vel Ég kom sem sagt heim á
fimmtudagskvöldi, gerði ekki mikið, var algjörlega úrvinda eftir 9
tíma ferð.. Á föstudagskvöldinu hitti ég æðislega vinnuliðið mitt..
kassagítar og stemmari, þvílíkt stuð Svo daginn eftir fékk maður
sér subbulega þynnkumáltíð á Kennaranum (ÓMG hvað ég er búin
að sakna Kentucky!!!   Á laugardagskvöldinu
komu mínar frábæru vinkonur í heimsókn, ekki margar að djúsa
samt, ég held að ég, Viktoría og Fríða höfum reddað því fyrir
okkur allar hehe.. jamm svo fórum við niður í bæ og
misstum okkur á dansgólfinu.. Það var æðislegt Við djömmuðum
til kl 8 um morguninn.. hehe ekkert ægilega sniðugt þar sem ég átti
að fara í loftið um eftirmiddaginn Svo var það náttlega típískt
að síminn minn dó um nóttina þannig að ég var ekki með
vekjaraklukku takk fyrir.. þannig að mín vaknaði hálftíma áður en
ég átti að leggja af stað upp á flugvöll og ekki byrjuð að
pakka.. Jesús.. en ég komst á endanum á réttum tíma.. get ekki
sagt að ég hafi tekið allt með með mér sem ég ætlaði að taka..
Þvílík stress ferð til baka.. ekki nóg með að við þurftum að keyra
á tveimur til Keflavíkur, þá seinkaði fluginu frá kaupmannahöfn og
ég hafði 15 mínútur í Prag til að koma mér á milli véla, og ég
hlaupandi í gegnum völlinn eins og eikkvað fífl..
Jamm það var æðislegt að koma heim og ég er strax farin að
hlakka til að koma um jólin en það eru 6 vikur í það.. úff hvað
tíminn flýgur hérna..
En jamm ég ætla að koma mér í háttinn, þarf að vakna
snemma á morgun, er að fara í latínupróf á þriðjudag
ehe 
meatus acusticus externus uhummm 
Ciao, Begga Slóvakíupía 
»
25.10.2005 18:11:19 / Begga
»
20.10.2005 13:59:55 / Begga
Eg er nuna buin ad vera herna i 4 vikur.. ekkert sma fljott ad
lida! tad er byrjad ad kolna herna nuna, finn alveg ad haustid er
komid brr... eg er nuna i midjum profalestri.. a semsagt ad
vera ad laera nuna ehe eg er semsagt ad fara i prof nuna a
manudaginn i anatomiu, og eg er ordin frekar stressud vaegast
sagt.. hmm vona bara ad eg nai og ta er eg satt 
Og svo er eg ad koma heim! JEIJ!! jamm helgina 3. - 6. nov
maetir min a klakann ordin ogedslega spennt, nebblega komin med
pinu heimtra..
En jaeja eg aetla ad fara ad hella mer i beinalestur, og rulla
profinu upp a manudag 
Later,
Begga
»
Síður: 1 2
|
|